|
|
10.02.2008 01:45:41 / diapia
Ég hef ákveðið að flytja mig. Ég játa óþolinmæði mína í garð blog.central.is Flutningar munu taka einhvern smá tíma og líklega mun ég flytja einhver blogg með mér... kemur í ljós. Ég ætla að gefa mér tíma í þetta og reyna að glata engu. Ég er að vonast til þess að næsta svæði sé skemmtilegra og traustara. Ég mun flytja mig á http://www.dianaosk.blogspot.com/ Hlakka til að sjá hvernig þetta kemur út
»
07.02.2008 10:48:13 / diapia
»
07.02.2008 10:22:42 / diapia
Ég elska snjó  Ég er búin að vera lasin síðustu daga Náði mér í einhverja flensu sem byrjaði á ælunni sem betur fer því þá gat ég ekki annað en legið heima. Ég er enn heima og upplifi að ég sé búin að missa af hellings... já lífið heldur áfram fyrir utan heimilið mitt og ég get ekki tekið þátt Allt sem ég ætlaði að gera í vinnunni, öll leyndarmálin sem áttu að líta dagsins ljós, allt sem ég ætlaði að gera með vinum minum, allt sem ég vildi gera fyrir stelpurnar mínar, allir þessir dagar sem eru svo áríðandi, bolludagur, sprengidagur, öskudagur og svo er núna allt fullt af snjó!!! Hehehehe... ég er sem betur fer ekki í alvarlegri sjálfsvorkun og lífið mitt heldur áfram hér heima þó ég sé veik, ég er þá bara að gera aðra hluti en venjulega. Ég horfi á myndir, tala í símann, set inn myndir á vefinn, skrifa bréf, sef... já ég sef alveg helling, þygg hjálp annarra ójá ég á sko góða að og hef nú þegar fengið tvo riddara til að hjálpa mér með það sem mig vantar í búðinni, Sunneva mín kom einn daginn og hjálpaði mér ásamt því að færa mér gjöf (ilmkerti og 3 sæta engla til að vaka yfir mér) bara sætt. Amanda mín lærir helling af þessu, hún fær að vera mun meira sjálfbjarga og þarf að taka meira tillit en venjulega. Og núna þegar ég hef fengið magnyl þá get ég farið að lesa Ég sem hef haft allt of lítinn tíma til að lesa. Ég er yfir mig þakklát að vera ekki í þunglyndi líka því hér áður fyrr þá fór ég í mikla depurð þegar ég var lasin. Nú öfundast ég bara smá .... Já ég öfunda ykkur sem getið farið út í dag að leika ykkur Það er geggjað að fara út að leika í svona snjó!! Ég gat líka haldið þessa daga og sinnt þeim vel, ég bjó til bollur á bolludaginn, hafði saltkjöt og baunir í matinn á sprengidaginn og litla ljóshærða dúllan mín breyttist í dökkhærða vampíru (ekki vínperu) á öskudaginn. Ég ætla að deila með ykkur mynd af henni Þegar hún var að lesa fyrir mig í gær þá var hún að lesa um sjómenn sem búa út á landi og þeir áttu allir einhverjar "Tryllur"(eitthvað til að trylla hvað?).... hvað er Trylla? og til hvers eiga þeir Tryllur? hahahha... ég gat ekki annað en skellihlegið þegar ég áttaði mig á því að hún var að tala um trillur (smábáta). Borgarbarnið er óvant þessum sveitaorðum
»
03.02.2008 13:11:45 / diapia
Þessi síðasta vika hefur verið rosaleg, eins og vinur minn segir svo oft "there is never a doll moment in your life" og allt hefur þetta verið "ups and downs" Það hefur mikið verið að gerast í vinnunni hjá mér, hin ýmsu mál að fást við þar. Spennandi, gefandi, krefjandi og erfið. Hin ýmsu leyndarmál hafa skotið upp kollinum og stundum líður mér eins og ég sé orðin "secret agent". Ég var svo góð að bjóða alþingismanni far og varð svo bensínlaus á leiðinni  Dóttir mín litla stóðst 1. stig á skautum og fékk mikið hrós bæði í sundi og í fimleikum. Ég fann mig á erfiðum stað gagnvart eldri dóttur minni og þar hvarf orkan mín reglulega. Eitt það versta sem ég veit er að óttast um líf þess sem mér þykir vænt um. Ég spjallaði mikið við sponsorana mína, hitti vini í kaffi, hugleiddi, bað og fór á fundi Ósk langamma stelpnanna dó á miðvikudagsmorgun. Ég samhryggist öllum sem að henni stóðu. Og nú er ég á leið í skýrn Já lífið er fullt af uppákomum
»
30.01.2008 08:32:28 / diapia
Mikið er það gott þegar einhver orðar hlutina fyrir mann 
Mæli með að allir lesi þetta blogg..
http://don.blog.is/blog/don/#entry-428620
»
19.01.2008 10:03:29 / diapia
Mikið hittu þessi orð í mark og því vil ég deila þeim með ykkur. Ég fékk mér ginger lemon te í morgun, yogi te sem er svo skemmtilegt því á tepokanum er ávallt smá speki. Orðin sem ég fékk í dag eru eftirfarandi: "Love what is ahead by loving what has come before" Ég hef einmitt verið mikið upptekin af því undanfarið hvað ég á orðið góða og fallega fortíð, fortíð sem ég get sótt helling í. Í þessari nýju fortíð minnni er að finna reynslu sem gefur von, fulluvissu og hugrekki sem ég get svo sannarlega þakkað fyrir. Þar af leiðir að ég get hlakkað til þess ókomna Einu sinni átti ég fortíð sem var að mínu mati bara svartnætti og þangað sótti ég bara kvíða og vonleysi, lof sé Guði að það er liðin tíð. Ég átti samtal við góða vinkonu mína í gær, við sátum á AMOKKA og drukkum gott kaffi og sáum ekki né heyrðum neitt annað en hvor aðra þar sem við vorum í svo mikilli innlifun í samtal okkar Samtalið snérist um samskipti og innri styrk. Sumir sem ég þekki segja að ég sé svo mikil ótemja aðrir segja að ég sé free spirit og hef ég mikið gaman af því að heyra hvað öðrum finnst um mig en þegar upp er staðið skiptir öllu máli hvað mér sjálfri finnst um mig og hver ég segi mig vera. Þess vegna kom á mig bros þegar ég las stjörnuspá sporðdrekans á mbl.is í dag en þau orð eru svona: Sporðdreki: Þú veist hver þú ert. Fólk skynjar þig öðruvísi en þú ert, og það fær þig til að efast. Ekki gera það. Vertu fastur fyrir í sjálfsþekkingu þinni. því hef ég sett saman orð dagsins í dag sem hljóma svo:  Lifðu þínu lífi, mundu að þú ert einstök sköpun í Kristi, allt er eins og það á að vera því það sem er nú er nauðsynlegt til að þú getir orðið sú/sá sem þú munt verða. Svo njóttu núsins
»
15.01.2008 16:27:38 / diapia
Ég hef lengi verið á því að það þurfi að auka gæslu á skólalóðum. Þetta atvik ýtir enn frekar undir þá skoðun mína. http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/15/reynt_ad_nema_barn_a_brott_af_skolalod/ Við erum með skólaskyldu í landinu sem er gott og vel en þá ættum við líka að vita að börnin eru eins örugg og frekast getur í skólanum. Kennarar eiga að vera sáttir með laun sín og það á að vera verulega gott fólk sem sinnir gæslu bæði á göngum skólanna og á lóðum skólanna. Allt of mörg börn hafa farið illa vegna eineltis eða ofbeldis í skólum og auðvitað eru skólalóðir draumastaður margra s.s. dílera, handrukkara, perra... osfrv. Já ég er hlynnt því að þeir peningar sem eiga að fara í forvarnir séu settir í forvarnir!!! Þá forvarnir sem virka... svo sem betri gæslu í skólum, betri lífsleikni tíma, tvíelfda lögreglu, námskeið fyrir alla barnaverndarráðgjafa, félagsráðgjafa, sálfræðinga, kennara, námsráðgjafa, lögregluþjóna og fangavarða og svo mætti lengi telja, námskeið um fíknisjúkdóma og allt sem þeim viðkemur, tvíelfda barnavernd, þéttari inngrip, skýrari skilaboð með framkvæmdum... svona svo eitthvað sé nefnt núna þegar ég er heit yfir þessu máli með skólalóðirnar. Mikið vildi ég vita hvernig þessi 8 ára snót komst hjá því að fara inní bílinn, ekki var hún nógu sterk til að berjast gegn 3 mönnum? komu kennarar eða gæsluaðilar henni til hjálpar? komu krakkar henni til hjálpar? Hvað varð til þess að hún komst í burtu? Var þessi stelpa það örugg með sig að hún gat hrópað á hjálp og barist gegn þessum mönnum? Hvað hefði gerst ef hún væri mjög meðvirk á þann háttinn að hún þyrði ekki annað en að vera kurteis? já eða þyrði alls ekki að hrópa á hjálp af ótta við að það yrði gert grín af henni? Já ... Ég vil gjarnan heyra þessa sögu til enda.
»
14.01.2008 08:35:40 / diapia
Þessi helgi fór alls ekki eftir mínu plani  Eins og svo oft áður þá tók lífið við... Við mæðgur vorum hressar og glaðar á laugardagsmorgun, hér var vaknað snemma þar sem við vorum með tvær bekkjarsystur Amöndu í gistingu. Amanda var líka að byrja í skautaskólanum svo spennan var töluverð. Þegar ég var að koma öllu heim og saman fyrir þann tíma sem við þurftum að rjúka út úr dyrum þá setti ég allt mitt hafurtask í indjánatöskuna mína nema einkagemsan og bíllykilinn það setti ég í jakkavasann og rauk út. Handviss um að allir væru með allt sitt dót Skautaæfinging gekk vel þrátt fyrir aumt rófubein og við tók ballet æfing sem féll ekki vel í kramið hjá minni. Á meðan að ég beið eftir skvísunum þá fór ég á kaffiteríuna og ætlaði heldur betur að ná í mig hita með smá kaffilús... en uppgötvaði þá að ég var ekki með veskið mitt Ég hafði skilið það eftir heima í rammlæstu húsinu. Planið var að fara til Keflavíkur eftir æfingu og skella okkur á tónleika til styrktar fátækum börnum... En í staðinn varð ég að finna leið til þess að brjótast inn heima hjá mér. Sem tókst Það kemur sér oft vel að hafa verið götubarn Í gær fengum við að njóta þess að fara í þjóðleikhúsið með frábærum mæðgum. Þar sáum við "Skilaboðaskjóðuna" sem var bæði falleg og fyndin sýning Við skemmtum okkur allar mjög vel og ákváðum að skella okkur á kaffihús eftir á til að njóta enn frekar. Stemningin var mjög hugguleg og við allar sáttar þar til Amanda mín fékk allt í einu mikla verki í maga Verkirnir ágerðust og stóra sterka stelpan mín varð allt í einu mjög lítil og veikburða Þegar mér leist ekki á blikuna þá ákvað ég að þreifa á henni magann og þar fann ég kúlu sem mér leist ekki á. Hin móðirin þreifaði líka og fann sömu kúlu og leist heldur ekki á svo stefnan var tekin beint á spítalann. Sem betur fer var daman ekki í hættu né neitt alvarlegt að hrjá hana og fór hún bara glöð og verkjalaus heim af spítalanum Svona er lífið mikið ævintýr
»
07.01.2008 08:40:28 / diapia
Meira hvað fréttirnar eru fullar af óþægilegum fréttum, óhöpp, umferðarslys, fólk að keyra undir áhrifum vímuvaldandi efna, ofbeldi og þá oft með vopnum, rán og það stórrán, óspektir, dauðsföll og svo má lengi telja. Ég fór með dömuna mína á fimleikaæfingu á laugardaginn og varð þar áhorfandi af fullvaxta karlmanni, vel formuðum sem tuskaði litlu stelpuna sína það hressilega til að allir aðrir, börn og fullorðnir urðu dauðskelkaðir. Ég fékk svo illt í magan og gat ekki annað en hugsað "versta framkoman sýnir sig samt oftast í skjóli svo hvernig kemur þessi maður fram við barnið þegar engin sér til" Ég hef verið dugleg að heimsækja góða og kæra vini og ég hef verið mikið með fjölskyldu minni Það gefur mér mikið. Ég hef einnig ákveðið að minnka töluvert við mig vinnu og gefa mér enn frekari tíma til þess að sinna mér og sambandi mínu við Guð. Ég þarf mikla nánd við Guð til þess eins að lesa fréttirnar Já í mínu tilfelli þarf ég að velja á milli þess að sinna mér og mínum vel eða vinnu/peninga. Oft þarf peninga til þess að sinna sér og sínum og þar treysti ég Guði Ég er nægjusöm og eltist ekki við tísku, ég er sátt við allt sem ég á eða á ekki, ég hvorki reyki né drekk en ég vil gera skemmtilega hluti Ég stefni t.d. á raft í Nepal í haust  Ég legg þetta ár í hendur Guðs og ég bið um vilja hans í mitt líf og líf stelpnanna minna. Ég leita fyrst ríkis hans og réttlætis og þá veit ég að allt annað mun veitast mér. Það hef ég lært af reynslu síðustu ára. Draumar mínir hafa flestir ræst og ég hafði bara ekkert fyrir því, ja alla vega ekki mikið og vitiði hvað... þarna var secret ekki að verki því ég trúði ekki sjálf að þessir draumar ættu séns. Ég hlakka til að sjá hvað þetta ár færir mér. Ég hef ýmis plön og drauma sem ég einbeiti mér að og geri mitt til að fylgja, einn dag í einu
»
02.01.2008 00:48:56 / diapia
WOW... Þvílíkur sársauki og þvílík sorg Ég var að horfa á "syndir feðranna" ég gat ekki hamið mig, ég fann svo til. Ég upplifði mikla reiði og ég á rosalega erfitt með að meðtaka það að þetta hafi viðgengist í öll þessi ár. Ég á líka erfitt með að meðtaka það að allir firri sig ábyrgð af þessu. Ég vona svo sannarlega að við sem þjóð, sem samfélag, sem fólk með manngæsku að leiðarljósi lærum af þessarri dýrkeyptu reynslu. Reynsla þessarra manna snerti mig djúpt og ég get ekki annað en sagt að ég samhryggist. Ég veit að svona reynsla myndar erfið sár en ég veit líka að það má vinna með flest þessi sár svo það verði auðveldara að lifa með þeim. Það hreyfði líka við mér að sjá mynd af þér Lalli minn þar sem þú varst ungur drengur á Breiðuvík... ég kannaðist við sögu Páls.. þegar hann leitaði til þín í myrkrinu. Lalli þú hefur oft veitt bæði skjól og huggun. Ég efast svo sem um það að þú lesir bloggið mitt en ég vil frekar skrifa þetta til þín en um þig. Ég sendi þér þakklætis og kærleikskveðju. Þetta vekur mig enn frekar til umhugsunar um það að fylgja eftir þeim lögum sem við búum við og láta vita ef ég hef minnsta grun um að barn sé beitt órétti !! það á þá líka við um stofnanir og stærri heimili. Þessir drengir voru flestir á aldrinum 9-11 ára þegar þeir komu fyrst á Breiðuvík. Aðskilnaður við þá sem þeim þótti vænt um, allt öryggi farið, breyting á öllu þeirra umhverfi, nýtt fólk, nýjar reglur og svo allt þetta ógeð.... andlegt, tilfinningalegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi ................ ég á engin orð bara tár. Þeir reyndu að láta vita og komust að því síðar að kynslóðin á undan reyndi líka að láta vita.......... arg... enn fleiri tár Það er oft dýrkeypt að vilja ekki rugga bátnum. Ég bið Guð að gefa mér hugrekki til að velja kærleika fremur en ótta.
»
31.12.2007 16:22:53 / diapia
TAKK FYRIR ALLT GAMALT Ég óska ykkur öllum farsældar og gleði á nýju ári ásamt góðri heilsu. Hlakka til að verða ykkur samferða og læra meira.
»
29.12.2007 23:48:54 / diapia
Hefur þú sest niður og skrifað niður allt það sem þú getur þakkað fyrir? Í dag þakka ég sérstaklega fyrir það að ég get staðið vel við bakið á Amöndu minni og að ég hafi nægilegt innsæi og næmi til þess að meta í hverju það felst 
»
26.12.2007 14:43:29 / diapia
Ég keypti mér bók á Þorláksmessu sem heitir "Kyrrðin talar" hún er eftir Eckhart Tolle en hann skrifaði líka "mátturinn í núinu". "Kyrrðin talar" virkar strax vel á mig Ég er ekki komin langt í lestri en ég er strax farin að skilja og finna að þessi bók hefur þessi nærandi, róandi áhrif á mig sem færa mig nær sjálfri mér. Ég hef þurft þessa daga til að snúa mig niður ég var of uppskrúfuð eitthvað... Það er gott að finna kyrrðina aftur og finna sín eigin lífsmottó Ég fékk fjórar bækur í jólagjöf og það gleður þennan mikla bókaorm. Ég fékk bókina "Mamma" sem er gjafabók uppfull af fallegum setningum um mömmur, hana fékk ég frá Sunnevu minni, bókina "Fangaðu tímann" sem er gjafabók frá Helen Exley, og bækurnar "Emmanuel´s book 2 og 3" Mikið rosalega hlakka ég til að lesa þessar bækur og glugga í þær. Þessar bækur eiga það allar sameiginlegt að ég get flett í þeim og lesið hvar sem er í þeim hvenær sem er. Þær sem sé krefjast þess ekki að ég lesi þær frá upphafi til enda. Andlegar bækur eru mitt uppáhald þó svo ég elski líka að lesa góðar spennu og ævintýrabækur. Við Amanda fórum eftir matinn í gær, heim til ömmu Evu og spiluðum þar hættuspilið og Actionary með nokkrum fjölskyldumeðlimum. Það var rosalega gaman og mjög yndislegt að sjá hvað allir voru afslappaðir og frjálsir. Ung dama hafði samband við mig í gær, frekar döpur eftir matarboð hjá fjölskyldu sinni. Þar voru ekki allir frjálsir og umræðuefnið setti fólk í enn frekari fjötra sem er sorglegt. Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég heyri þetta eða sé, að fólk sé að velta því fyrir sér í hvernig fötum aðrir ganga. Að umræðan á jóladegi sé um það hvað fólk gangi í hallærislegum fötum eða hvað það gefi hallærislegar jólagjafir... en þetta er víst í anda þess að verslunareigendur eru glaðir um jólin. Það sorglega við þetta er að margir vilja ekki vera í þessum fjötrum og enn fleiri upplifa sig dæmda ef þeir flokkast undir að einhverju leyti að vera þessir hallærislegu. Ég er hamingjusamlega frjáls undan þessu og er Þakklát fyrir það og mun því bæta því inná þakkarlistann minn.
»
24.12.2007 13:15:46 / diapia
Jólasnjórinn kom Úti er allt eins og ég vil hafa það. Hér heima er líka allt eins og ég vil hafa það og ég upplifi sanna gleði, sátt og þakklæti svo hið innra er allt eins og ég vil hafa það GUÐ er góður og á hann allt lof og allan heiður Við erum lítið búnar að sofa því spennan er svo mikil hjá skottinu mínu Við erum búnar að borða möndlugrautinn og fara í góðan göngutúr um hverfið í þessu fallega veðri. Nú er bara verið að slaka á og njóta þess að vera saman. ÉG ÓSKA YKKUR ÖLLUM GÓÐRA JÓLA OG VONA AÐ ÞIÐ NÁIÐ AÐ NJÓTA!!
»
23.12.2007 14:04:19 / diapia
Þetta eru svo skemmtilegir tímar. Þorláksmessa.. af hverju heitir þessi dagur þetta? Amanda spurði mig í gær og ég átti engin svör nema það sem mér datt í hug og það auðsóttasta var að það hefði verið uppi einhver sterkur karakter að nafni Þorlákur sem hélt messu á þessum degi frekar en aðfanga eða jóladegi... ?? Ef einhver veit þetta þá vil ég gjarnan fá að vita. Þorláksmessa er að mínu mati einn af þessum skemmtilegu dögum, þetta er dagur þar sem flestir fara í einhver heimboð og skötuboð, þetta árið fékk ég skemmtilegt skötuboð og nokkur heimboð og ég mun gera mitt besta til að mæta hjá öllum Eins á ég von á því að einhverjir líti hér inn og mun taka fagnandi á móti þeim. Sú fyrsta sem mætti var sponsorinn minn hún Guðlaug og sátum við hér í góðu spjalli og tedrykkju fyrir hádegi  Sunneva dóttir mín hringdi í mig rétt í þessu og gladdi mig með því að óska eftir því að fá að koma heim og gista í nótt, þar sem hún ætlar að vera með okkur mæðgum á aðfangadag Svo nú skottumst við skvísur af stað með rauðar jólahúfur og bros í hjarta af stað til að gefa og þyggja kærleiksknús
»
Síður: 1 2 3 ... 27
|
|